Mér varð litið á vefsíðu á batman.is áðan, nánar tiltekið vefsíðu Snorra forsetaframbjóðanda þar var hann með síðu um varning sem að hann er að selja. Ég ætla bara að vitna beint í hann um þessi syndaaflátsbréf.

————————————————— —————
Syndaaflátsbréf hafa ekki verið seld í nokkur ár og hef ég nú fengið leyfi frá almættinu tal að gefa slík bréf út og selja litlum og stórum syndurum í landinu. Aflátsbréfin eru gefin út í þremur flokkum:

3. flokkur fyrir hinn almenna syndara og kostar aflausnin þá aðeins 2000 krónur.
Er fyrir léttvægar syndir eins og hvítar lygar og óhreinar hugsanir.

2. flokkur er fyrir þá sem hafa drýgt stærri syndir og kostar fyrirgefning stærri synda 5000 krónur.
Er fyrir stærri syndir eins og þjófnaði, skjalafals, framhjáhöld og ölvun á almannafæri.

1. flokkur tryggir kaupandanum syndaaflát fyrir allar syndir smáar sem stórar, dauðasyndir og jafnvel morð. Einnig eru innifaldar syndir sem enn hafa ekki veri framdar svo og smærri misgjörðir sem gleymst hafa. Fyrsta flokks kostar aflátsbréf 15.000 krónur.
———————————————- ——————-

Ef að maðurinn heldur að hann sé eitthvað máttugri en við og geti selt okkur klósettappírsrúllur á fimmtánþúsund af því að hann hefur blessað þær með “leyfi frá almættinu” er hann alvarlega geðbilaður og mæli ég með rannsókn á kleppi.
Ég trúi ekki á himnadrauginn en veit nú sitthvað um kristna trú og það er ekki samkvæmt vilja himnadraugsins að græða á trúnni.

Ég ætla aftur að vitna í Snorra í tölvupósti sem að hann sendi mér þegar að ég spurði hann út í þetta vegna þess að mér blöskraði þetta svo…

——————————————— —————-
Fjöldi fólks hefur keypt aflátsbréf af mér og þeim líður mjög vel.
Aflátsbréf mín gera það af verkum að fólk sem er ófrjálst vegna samviskubits
eða gamalla synda, getur gengið um göturnar hnarreist og frjálst.
Fólk þarf á fyrirgefningu að halda og ég er maður fyrirgefningarinnar.
Reynsla fólks af aflátsbréfum mínum hefur vakið upp þær spurningar hvort það
sé ekki betra og ódýrara að kaupa aflátsbréf handa fermingarbörnunum sem spara
allt umstang sem fermingunni fylgir.
Kæri Brynjar ef þú ert þjakaður af synd skaltu kaupa af mér aflátsbréf.
1. flokks aflátsbréf tryggir þér aðgang inn í himnaríki og er það ekki það sem
við öll viljum.

Kær kveðja

Snorri Ásmundsson
————————————————–

Annað hvort er maðurinn snargeðbilaður eða fær peningaplokkari. Hvort sem er, þá er maðurinn ruglaður og ekki maður sem að við ættum að hlaupa í forsetastólinn.
Ef að þið viljið fræðast meira um manninn bendi ég á síðuna hans (http://this.is/snorri/forseti)

Kv. Nari
MSN: brynjar@karlmenn.com
Mail: binnigud@simnet.is
Greinin birtist upphaflega
eftir mig á www.binnigud.tk