Ég var að lesa DV í skólanum í dag þegar ég las grein um Stjúpafa sem nauðgaði 7 ára barni sem var að gista hjá honum og ömmunni. Stelpan hafði komið uppí rúm til þeirra af því að hún vaknaði um nóttina. Þá fór þessi ógeðslegi kall sem á skilið að vera skotinn að káfa á brjóstunum og stinga puttanum uppí píkuna og rassinn á þessari aumingja litlu stelpu sem á örugglega aldrei eftir að jafna sig eftir þetta. Hvað er að þessu ömurlega dómskerfi á þessu landi? Fólk er að fá 4-6 mánuði fyrir að nauðga auk þess að fólkið kemst oftast ef ekki alltaf út fyrr. Fólk er auk þess að fá þónokkur ár fyrir
fjandans skattsvik, hverjum er ekki drullusama um nokkrar milljónir ?
Við erum að ræða um að aðilinn sem var nauðgað verði þunglyndur einstaklingur, missi allt sjálfsálit og verði ófélagslyndur einstaklingur í þessu samfélagi. Það mætti kalla nauðgun sálarmorð. Auk þess stendur skýrt og greinilega í hegningarlögunum:

201. gr. Hver sem hefur samræði eða önnur kynferðismök við barn eða ungmenni, yngra en 18 ára, sem er kjörbarn hans, stjúpbarn, fósturbarn, sambúðarbarn eða ungmenni, sem honum hefur verið trúað fyrir til kennslu eða uppeldis, skal sæta fangelsi allt að 8 árum og allt að 12 ára fangelsi sé barn yngra en 16 ára.

ég hef aldrei lesið um að eikker fái nokkur ár fyrir nauðganir, aldrei!
Steingrímur njálsson var alltaf að fá 4-6 eða 7 mánuði fyrir allan þennan skaða sem hann hefur valdið þessum drengjum!
Ég verð svo reiður og bitur þegar ég les um svona lagað, þetta er svo viðbóðslegt, ég meina hafa þessar manneskjur enga siðferðiskennd?
Það lítur ekki út fyrir það!

Ég vil alveg endilega vekja umhugsun í þessum málefnum
Kv.Dandri