Núna ætla ég að fjalla um málefni sem ég er afskaplega ósáttur við.
Ég var ekki viss hvort ég ætti að segja þetta undir Stjórnmál eða kynlíf..
Það eru alltaf að koma upp viðurstyggileg mál um eikkerja ógeðslega kalla sem nauðga ungum konum og fá 3-4 mánuði fyrir það.
Svo er þyngri dómur fyrir skattsvik! Nauðgun er miklu miklu verra, því að einstaklingurinn mun aldrei gleyma þessu atviki. Einstaklingurinn getur gjörsamlega breyst úr opnari og glaðlegri manneskju í lokaða og feimna persónu, því að þetta hefur svo mikil áhrif á hana/hann, þessu fylgir auk þessa þunglyndi, auknum líkum á sjálfsmorði og ýmsum sálfræðilegum vandamálum. Ég var að horfa á þátt með Dr. Phil um daginn. Í þeim þætti var umræðuefnið nauðganir. ´Það var fenginn eikker dæmdur nauðgari til að opna sig um sín mál. Svo komu 2 fórnarlömb nauðgara, annað var maður sem var fullorðinn núna en hafði aldrei náð sér eftir þetta til að tala um þetta. Hann var búinn að stofna fjölskyldu og gekk ágætlega í lífinu en hann náði þessu aldrei úr sér. Hinn aðilin var 20 ára gömul stelpa sem hafði verið rænt og var haldið föngnu í marga mánuði, og ekki nóg með það! Henni var nánast stanslaust nauðgað og beitti líkamlegu og andlegu ofbeldi allan þennan tíma. Og aumingja stelpan, allan tíman sem hún var í þættinum þá brosti hún aldrei, hún var greinilega hrikalega skemmd eftir þetta. Það var líka auðséð að Dr. Phil fyrirleit þennan nauðgara sem Phil var að tala við. Afhverju í fjandanum var t.d. Steingrímur Njálsson ekki geldur eftir þessi fjöldamörgu nauðgunartilraunir hans ?
Því að ríkið getur ekki hjálpað þessum manni, hann er greinilega alltof sjúkur. Svo fékk hann alltaf 2-4 mánuði fyrir hverja tilraun, og svo var hann kominn aftur út að nauðga enn fleiri ungum drengjum. Mér finnst alveg ótrúlegt að ríkið geti ekki bætt samfélagið með meiri fjárveitingum gegn nauðgunum,líkamlegu ofbeldi, andlegu ofbeldi og sifjaspelli. Þeir eru hvort sem er að eyða milljörðum í margt annað. Svo heyrði ég frétt í útvarpinu fyrir nokkrum mánuðum en þá var verið að rétta yfir manni sem reyndi að nauðga fertugri konu á reiðmannahátíð. Hann fékk lægri dóm af því að hann náði ekki að nauðga henni í tjaldi þar sem hún var! Hvaða helvítis rugl er það! Hann fékk 4 mánuði! Hann hefði átt að fá mörg ár. Svo stendur í ýmsum reglugerðum að fólk eigi að fá margfalt þyngri dóm en þetta. Að minnsta kosti tífalt meira en þetta! Þetta er eitt af því versta sem er hægt að gera fólki, en svo er fólkið að fá 4 mánuði fyrir svona viðurstyggilegan hlut. Svo hefur það líka komið í ljós að mörg fórnalömb nauðgara verða nauðgarar. Og allir nauðgarar hljóta að vita alveg hvað þeir eru að gera fólkinu sem þeir nauðga, þeir þurfa bara að fá sínum afbrigðilegu tilfinningum fullnægt.

Ég ætla að vona að sem flestir lesi þetta :)
Og endilega segið álit ykkar á þessari grein og þessu málefni.
Þetta er mjög ógeðslegt vandamál sem þarf að uppræta.
Kv.Dandri