Kæru Hugarar

Mig vantar hjálp ykkar, ég þarf að finna nafn á tveim stelpum, allavegana annari þeirra. Þær settu af stað undirskriftarlista í sambandi við að ekki verða haldin innökupróf í Leiklistardeild Listaháskóla Íslands í vor.

Ég skrifaði gein hér á huga um daginn þar sem bréf sem ég skrifaði til verðandi menntamálaráðherra, allra fjölmiðla landsins og allra alþingismanna íslands.

Þannig er málum háttað núna að ég er búinn að redda fundi með nokkrum alþingismönnum til að ræða stöðu LHÍ, og mig vantar að fá nokkra með mér sem hafa e-d um málið að segja.

Eins og ég segi veit ég það að það var settur af stað undirskriftarlisti, einhverntíman í Nóvember síðastliðnum, og ef einhver hér vissi e-d um það mál og hverjir það voru sem stóðu að honum, endilega látið mig vita þannig að ég geti sett mig í sambandi við það fólk. Og einnig ef það eru einhverji þarna úti sem hafa áhuga á að fylgja þessu eftir endilega beinið þeim á að hafa samband við mig

Kær kv