Já, þetta með að við íslendingar séum að verða næstum undirgefin fyrir bandaríkjunum er hrikalegt (þó ég ætli nottla ekkert að alhæfa og segja að það séum við allir íslendingar sem erum svona, en stjórnvöldin okkar eru það alla vega sem er ekki gott). Ég skil ekki þessa aðdáun við þetta “vonda” land (þó að það sé líka margt gott í því). Þar sem að ég bjó í flórída og er fædd þar hef ég græna kortið, og gæti orðið bendarískur ríkisborgari. Margir hafa sagt að ég sé mjög svo heppin að hafa þennan möguleika, en ég á ekki eftir að nýta mér hann mikið. Ég man nebbla að þegar ég var lítil þá mátti ég ekki leika mér ein úti, mamma og pabbi þurftu alltaf að standa við hliðina á mér, meira að segja í af lokuðum garði hússins mína. Ekki einu sini hægt að treysta sínum næstu nágrönum.

Svo er líka margt fleira, það er svo mikið af öfgum þarna engin meðal í vexti, annað hvort of feitir eða of mjóir (ég enn og aftur að alhæfa). En þetta er nottla svo stórt land og allar tegundir af fólki til þarna:P Örugglega það margbreytilegasta land ever.

Reyndar er allt alltof dýrt á íslandi:P En þetta dýra verð hér, er líka sýnilegt í bandaríkjunum:P Þó að þar sé líka að finna miklu ódýrara. En þetta er það gjald sem við verðum að gjalda fyrir fámennt, lítið og þægilegt land. Við höfum guð sé lof ennþá mun minna af ofbeldi, eiturlifjum og þvíum líkt hérna á íslandi. Lítið um morð pælið í því það er ekkert svoo…merkilegt í bandaríkjunum ef morð er framið það verður fyrst merkilegt ef þetta eru mjög gróf fjöldamorð, og þá er það ekki að reyna að sanna hver morðingin sé heldur hver sé ekki morðingin:P Það hringja svona 500 menn og segjast vera morðingin, og þá er það löreglunnar að sanna að þeir séu ekki morðingjarnir:P Og áður en að morðingin næst þá eru farin að berast ástarbréf í hundraða tali þar sem stelpur segjast vilja giftast morðingajnum og meira en það. Ef þetta er ekki afar sjúkt hvað er þá sjúkt má ég spyrja. Ekki viljum við íslendingar fara að líkjast þessu held ég!!

Þegar ég var svona eins árs, þá bjó ég í mjög litlum háskólabæ (jafnstór og rvk og nágreni). Þá voru mjög ógeðsleg fjöldamorð framin og allir í bænum voru búnir að kaupa sér byssu:P (meira að segja pabbi minn) Og hann var búin að drepa (nauðga og aflima)fjórar 17 ára stelpur, allar lávaxnar og dökkhærðar og var að ráðast á fimmtu þegar að kæristi hennar sem var líka þarna náði að særa morðingjann svo að hann hætti. En hann náðist aldrei. Hugsið ykkur þetta ógeðsaleg krípi er ennþá laust og ó kannski litla krakka, kasski stelpu sem er dökkhærð og eigin konu sem veit ekkert um það sem hann hefur gert.
Mar getur þó aðeins vitað meira um skyldmenni og tengdafólk sitt á íslandi:P

Og síðan var talað um að norðurlöndin væru mun betri en t.d. í Svíþjóð sem á að vera mjög öruggt land. Þar bjó frændfólk mitt, en svo eitt kvöld braust inn eiturlyfja sjúklingur, þegar þau voru sofandi og tók þau sem gísla. Frænda minn sem var 7 ára og frænku mína 12 ára og pabba þeirra. Hann sagði að þau mættu ekki hreyfa sig eða tala saman eða hann myndi meiða þau. En á einhvern óvenjulegan hátt þá náðu þau að senda hljóðlaust og hreyfingar lítið augnmerkjarmál. Og hlaupa útúr húsinu á sama tíma, og inn til nágrannanna og hringja þar í lögguna (ennþá hægt að treysta næstu nágrönum þar samt). Þessa hættu mundi ég ekki vilja búa við!! Og örugglega ekki þú heldur!!