Hef verið að lesa greinar sem hafa verið sendar inn og flestar greinarnar eru um réttarkerfið þ.e.a.s nauðganir, kynferðislega misnotkanir og svoleiðis mál ! Mér finnst þetta vera fáránlegt hvað nauðgarar fá lítinn tíma í fangelsi eða bara engann fangelsisdóm.. Hæsti dómur sem kveðinn hefur verið upp hér á Íslandi er 5 og 1/2 ár, og var það bara nýlega. Næst hæsti dómur sem kveðinn hefur verið upp er 2-3 ár ( man ekki alveg en það var eitthva um 2 og 1/2 til 3 ár ) ! er þetta eitthvað réttlæti ? ætla þeir bara að láta þetta ógeðslega pakk nauðga hverjum sem er ? ! Ég meina það á að senda fólk sem nauðgar eða misnotar á einhvern hátt í fangelsi í minnsta lagi 5-10 ár og svo meðferð eftir það, þetta fólk þarf meðferð, það á ekki bara að henda því í fangelsi í 2 mánuði - 1 ár og svo henda því aftur heim til sín! Það byrjar bara aftur. Sumt fólk sem nauðgar/misnotar hættir ekki að gera það! Sumir ná að komast til vits og hætta þessu ! Nauðgun er bara ógeðslegt fyrirbæri og þetta á ekki að vera svona létt fyrir fólk sem nauðgar/misnotar að komast upp með það! Eins og bjarnih ( notandi á huga sagði ) ,, Nauðgun er sár á sál og líkama " ! Sem er alveg rétt !! Þetta er bara ógeð! Mér hefur verið nauðgað og málið er rétt svo að komast til dómstóla núna þar sem meðferð á málinu, skýrslutaka af mér og svoleiðis hafa gengið svo hægt! það er eins og málum af þessu tagi sé bara ýtt til hliðar ! Ég er ekki að skrifa þessa grein útaf því að ég er reið útaf hlut sem gerðist fyrir 2 árum! Þetta er bara svo mikið óréttlæti fyrir fólk á Íslandi, fyrir fórnarlömb og aðstendendur fórnarlamba nauðganna og misnotUnar ! Því tekur ekki eitthver snobbaði þingmaður sig til og fer með þetta umræðu efni á ÞING ! Reyna að gera eitthvað í þessu .. Giska að þeir hafi ALLLT ANNAÐ IMPORTANT 2 DO .. EN AÐ HLUSTA Á EITTHVERJA ÍBÚA ÞESSA LANDS SEM VILJA RÉTTLÆTI!! þyngri refsingar í kynferðisafbrotamálum! alveg sama á hvaða aldri fólk er sem er nauðgað/misnotað ! Þetta er ekkert réttlæti í þessu landi sem við lifum í !