Fékk þetta í tölvupósti um daginn og langar til að deila með öðrum.

Smá hugleiðing
Sælir viðtakandi góður. Langaði bara að deila þessari litlu
orðsendingu með þér. Góð áminning: vertu þakklát/ur fyrir það sem þú
hefur. Síðasta dag fyrir jól flýtti ég mér í stórmarkaðinn til að
kaupa gjafirnar sem ég komst ekki yfir að kaupa fyrr. Þegar ég sá
allt fólkið þar, byrjaði ég að kvarta í hljóði “Þetta á eftir að
taka heila eilífð og ég á enn eftir að fara á svo marga staði”.
Jólin eru alltaf að verða meira og meira pirrandi með hverju árinu.
Ég vildi að ég gæti bara lagst niður og farið að sofa og vaknað svo
eftir jólin. Allavega, ég kom mér í leikfangadeildina og þar fór ég
að skoða verðin, hugsandi hvort að börn leiki sér eitthvað með svona
dýr leikföng. Eftir smá tíma af leikfangaskoði þá tók ég eftir
litlum strák um 5 ára, sem hélt á dúkku upp við brjóstið sitt. Hann
strauk hárið á dúkkuni og virtist svo sorgmæddur. Svo snéri litli
strákurinn sér að eldri konu sem var við hliðina á honum “amma, ertu
viss um að ég hafi ekki nógu mikla peninga?” Gamla konan svaraði “þú
veist að þú átt ekki nóg til að kaupa dúkkuna elskan mín” Svo bað
hún hann um að bíða í 5 mínútur eftir sér á meðan hún skoðaði sig
um. Hún fór fljótlega.
Litli strákurinn hélt ennþá á dúkkunni í hendinni. Ég labbaði til
hans og spurði hann hverjum hann ætlaði að gefa dúkkuna. “Þetta er
dúkkan sem systir mín elskaði mest og langaði svo mikið í fyrir
jólin. Hún var svo viss um að jólasveinninn myndi gefa sér hana. Ég
sagði honum að kannski eigi jólasveinninn eftir að koma með dúkkuna
til hennar, og að hann þyrfti ekki að hafa áhyggjur. En hann sagði
við mig sorgmæddur ”Nei jólasveinninn getur ekki gefið henni dúkkuna
þar sem hún er núna. Ég verð að gefa mömmu dúkkuna svo að hún geti
gefið henni hana þegar hún fer þangað“. Augun hans voru svo sorgmædd
meðan hann sagði þetta. ”Systir mín er farin til þess að vera með
Guð. Pabbi segir að mamma sé líka að fara til Guðs mjög fljótlega,
og ég hélt að hún gæti farið með dúkkuna fyri mig og gefið systur
minni hana“. Hjartað mitt stoppaði næstum því. Litli strákurinn leit
upp til mín og sagði ” Ég sagði pabba að segja mömmu að fara ekki
alveg strax. Ég bað hann um að bíða þangað til að ég kæmi heim úr
búðinni“ Svo sýndi hann mér fallega mynd af honum þar sem hann var
hlægjandi. ”Ég vil líka að mamma taki þessa mynd með sér svo að hún
gleymi mér aldrei“ ”Ég elska mömmu mína og ég vildi óska að hún
þyrfti ekki að fara, en pabbi segir að hún verði að fara til að vera
hjá litlu systur minni“. Svo leit hann aftur á dúkkuna með
sorgmæddum augum, mjög hljóðlátur. Ég teigði mig hljóðlega í veskið
mitt og tók smá pening upp og sagði við strákinn ”en ef við athugum
aftur í vasan til að tékka hvort að þú eigir nógan pening?“ Allt í
lagi sagði strákurinn ”ég vona að ég eigi nóg“
Ég bætti smá af mínum peningum við án þess að hann tæki eftir því og
við byrjuðum að telja. Það var nógur peningur fyrir dúkkunni, og
meira að segja smá afgangur. Litli strákurinn sagði ”Takk Guð fyrir
að gefa mér nógan pening. Svo leit hann á mig og sagði “ Í gær áður
en ég fór að sofa þá bað ég Guð um að vera viss um að ég hafi nógan
pening til þess að geta keypt dúkkuna handa systur minni. Hann
heyrði til mín” “Mig langaði líka að eiga nógan pening til að kaupa
hvíta rós handa mömmu, en ég þorði ekki að biðja Guð um of mikið, en
hann gaf mér nóg til að kaupa rósina líka”. Sko mamma elskar hvíta
rós“. Nokkrum mínútum seinna kom gamla konan og sótti strákinn. Ég
kláraði aðversla með allt öðru hugarfari, ég gat ekki hætt að hugsa
um litla strákinn. Svo mundi ég eftir frétt í blaðinu fyrir 2 dögum
síðan ”maður keyrði drukkinn og klessti á bíl þar sem ung kona og
lítil stelpa voru í. Litla stelpan dó samstundis en mamman var í
dái" Fjölskyldan varð að ákveða hvort að það ætti að setja hana í
öndunarvél eða ekki, af því að hún unga konan myndi ekki vakna úr
dáinu. Var þetta fjölskylda litla stráksins? Tveim dögum eftir að ég
hitti litla strákinn, las ég í blaðinu að unga konan hafi dáið. Ég
gat ekki hamið mig og fór út íblómabúð og keypti búnt af hvítum
rósum og fór upp í líkhús þar sem fólk gat séð konuna og og óskað
sér í seinasta skipti áður en hún væri jörðuð. Hún var þarna í kjól,
haldandi á fallegri hvítri rós með myndini af litla stráknum og
úkkuna á brjóstinu. Ég fór grátandi og fannst líf mitt hafa breyst
il eilífðar. Ástinsem þessi litli strákur hafði til mömmu sinnar og
systur, er enn þann dag í dag, erfitt að ímynda sér.
Og í einni svipan tekur drukkinn maður þetta allt frá honum.
Núna hefur þú 2 kosti:
1) Sendu þessi skilaboð til allra sem þú þekkir.
2) Eða hentu þessu og láttu sem þetta hafi ekki snert hjartað þitt.
Ef þú sendir þessi skilaboð, þá kannski hindrar þú einhvern til þess
að keyra drukkinn..