Nú hafa Effemm menn og konur gert í buxurnar með hlustendaverðlaununum sínum. Farið inná www.fm957.com og veljið hlustendaverðlaunin þar kemur upp gluggi sem að er kjörseðillinn þinn. Ekki nóg með það að hver maður getur kosið eins oft og hann vill, heldur er mynd af tveimur íslenskum poppurum á kjörseðlinum. Er það ekki eins og að hafa mynd af Davið Oddssyni og Jóhönnu Sig á kjörseðli fyrir Alþingiskosningar?

Þetta er ekkert smá fáranlegt. Þetta verða skrítnustu kosningar sem ég hef séð. Það er allavega tryggt hérna á Huga að hver og einn getur bara kosið einusinni í hverri könnun.

Annars skipta þessi hlustendaverðlaun ekki miklu máli nema fyrir þá sem þau hljóta. En er þá ekki rétt að tryggja að kosninginn fari rétt og eðlilega fram? Ja, ég spyr ykkur…

Xavie