Hvílík sorg. Ég skammaðist mín mikið áður en þeir breyttu evró laginu. Djísuss segi ég nú bara núna. Mann andskotinn komst ekki aðeins upp með að stela laginu til að vinna undankeppnina heldur tókst honum að breyta laginu rétt þannig að ekki væri lengur hægt að segja að það væri stolið en allar þær breytingar sem hann gerði voru svo hræðilegar að maður vorkennir okkur hinum sem vildu fá lag sem hefði vott af frumleika út. Ég segi bara mótmælum enn frekar núna eftir að hann breytti því svona hryllilega því fyrir var það nú allt í lagi ( enda stolið) en núna úff úff úff maður gat bara ekki beðið eftir að það væri búið. bakraddirnar voru brandari og gerðu lagið eins og skrípasýningu í keppni um hver gæti gert hryllilegasta lagið. MÓTMÆLUM, BJÖRGUM ÆRUNNI!

p.s. ég held svei mér þá að ég sé tilbúin til að játa því að Birgitta fari út en bara ekki með þennan hrylling ;(


p.s.2 það liggur við að maður voni að keppnin verði ekki bara til að bjarga okkur frá skandal… ég held að ef lagið hefði hljómað svona í undankeppninni hefði það ekki einu sinni komist í top 3!
þú hefur orðið vitni að kraftaverki, verslaðu á e-bay