Ég er farinn að verða mjög óþreyjufullur. Það er gaur sem ég hitti reglulega þegar ég fer út á lífið um helgar sem horfir alltaf undarlega á mig. Svo er annar félagi hans sem mig grunar að sé fjöldamorðingi og ég sé jafnvel næstur í röðinni. Ég hef verið að sniglast eitthvað í kringum heimili þeirra og taka ljósmyndir en ég get ekki fundið neitt máli mínu til sönnunar. Þeir kumpánar eru svo ótrúlegir að fela hluti. Ekki spyrja mig hvernig ég viti þessa hluti en ég hef það frá áreiðanlegum heimildum sem ég get ekki nefnt. Þeir félagar gætu myrt heimildarmennina mína.

Ég hef reynt að fá vini mína með mér í að ganga frá þeim en þeir trúa ekki mínum gögnum. Þeir segja alltaf: “Af hverju talarðu ekki bara við lögregluna?” “Lögregluna?” segi ég. “Ég get ekki gefið upp mínar heimildir og auk þess þarf lögreglan sannanir og þvi fylgir bara pappírsvinna og endlaust vesen. Á meðan geta þeir verið að myrða fullt af fólki. Síðan er ég eini sem hef nægilega góð vopn og tól til þess að ganga almennilega frá þeim. ”

Það er semsagt nægilegt samkvæmt G.W. Bush að verða óþreyjufullur. Það er það sem G. W. Bush hefur sagt. Þegar ég verð óþreyjufullur þá ræðst ég inn og drep þá. Og það verður að horfast í augu við staðreyndir þessi aðferð er sú eina sem getur komið á stöðugleika og friði í heiminum og mínu bæjarfélagi. Eina leiðin til þess að stöðva ofsatrúaðra múslima er að sprengja nokkur múslima ríki sem hafa aldrei ráðist á Bandaríkin eða þá Bretland. Þetta er einmitt ástæðan fyrir því að ég ætla að taka félaga mína og sprengja upp húsið þeirra og drepa börn þeirra og eiginkonur.

Bush gerir öllum það ljóst að Saddam sé illur maður og hann eigi gereyðingarvopn þó enginn geti fundið þau. Ég er pottþéttur að ég hafi jafn góðar ástæður til þess að drepa þessa menn í bænum mínum og Hr. Bush. Langtímamarkmið Bush er að öllum hryðjuverkamönnum verði eytt af yfirborði jarðar. Hvernig er hægt að vita það hafi tekist? Hvenær er hægt að vita að allir hryðjuverkamenn séu dánir? En enginn verður hryðjuverkamaður fyrr en einhver fremur hryðjuverk.

Þá berst talið að verðandi hryðjuverkamönnum. Flestallir hryðjuverkamenn hafa þegar sprengt sig í tætlur í Ísrael eða 11. september. Þá er málið að drepa alla verðandi hryðjuverkamenn.

Þá þarf Bush að drepa alla ofsatrúar múslima heimsins. En hvað um þá sem eru ekki ofsatrúar þá þarf að drepa alla venjulega muslima því þeir gætu orðið ofsatrúar. Það þarf þá eiginlega að drepa alla múslima. Þetta er það sama í mínu bæjarfélagi. Þeir eru aðeins toppurinn á ísjakanum. Það er fullt af fólki sem ég þoli ekki og enginn er óhulltur í mínu bæjarfélagi fyrr en allir eru horfnir á braut. Kærastan mín segir mér að ég gangi of langt. Ég segi henni að Bush noti þessi rök og það sé nægjusamt fyrir mig. Það þaggar niður í hennar röfli. Ég get ekki beðið legur nágrannar minir verða að viðurkenna allt. Ég vil að allir sem mér líkar illa við flytji eitthvert annað janfvel bara af landi brott. Ef að mér verður ekki hlýtt verður hús allra sem mér líkar illa við sprengdur í loft upp. Mín taktík er sú sama og Bush og þess vegna virkar hún vel. Samt sem áður sprengi ég ekki upp heila þjóð einungis nokkur hús. –þýtt og breytt aðeins-
——————–