Jæja, ég keypti mér fyrir nokkru þráðlaust heyrnatól í BT sem heitir ROSS og er því miður algjör krapi. Áður en ég brenni mig aftur á svona lélegum kaupum vildi ég spyrja þá sem vit hafa hvaða tæki myndi best henta mér. Ég er alveg til í að setja smá pening í þetta þar sem ég sætti mig varla við neitt suð og hef ákaflega gaman að hlusta á tónlist á fullu blasti í langan tíma í senn. Ef einhver á góð tól og vill mæla með þeim þá máttu endilega segja mér hvað þau heita.

-Kjartan