Er nýkominn inn á þetta spjallhorn, en þetta er nákvæmlega það sem ég hef verið að leita að. Er þessa stundina að fínkemba netið (bæði á Kazaa og á FTP leitarsíðum) að góðri ambient tónlist. Hef verið að safna raftónlist frá 1993 og er einna hrifnastur af ambient forminu og á þó nokkurt safn. Gaman að sjá að það eru fleiri sem hlusta á Global Communications, Biosphere, Pete Namlook og svo mætti lengi telja. Ef einhver hér hefur áhuga á að skiptast á diskum tímabundið til hlustunar eða hvað annað, endilega sendið mail til mín og ég get sent lista yfir allt það sem ég á.