Jæja lömb, nú er skilafrestur útrunninn og meira til (keppnin enn og aftur). Vika liðin og sitthvað fleira. Ég tek það fram að ég ætla ekki að vera með neinn kjaft, en what is on?
Ég hef heyrt og lesið að inn sendust yfir 200 lög, og það er mikið, en hvernig væri að láta fólk vita hvað er í gangi… hvenær fólk fær að sjá öll lögin… eftir viku eða tvær… mánúúð, ár… og þess konar dót. Í hnotskurn: Látið okkur sem blóðþyrstir í íslenska raftónlist vita hvað er í gangi, og þá erum við að dansa.
Adios.