Málið er það að ég er með hljómborð (casio ctk-571) með midi tengi og ég tengi það við tölvuna mína en ég fæ það bara ekki til að virka. Ég er með Acid pro og fruity loops og ég hef reynt ótal stillingar en aldrei tekst mér að taka upp. Er eitthvað í windows(er með windows 98) sem ég þarf að stilla betur eða er þetta bara því ég er með svo lélegt hljóðkort(bara soundblaster 16)? Öll hjálp vel þegin því ég er að verða brjálaður á þessu.