Ég var bara að hugsa, hvað gerið þið til þess að fylgjast með nýjustu tónlistinni og fræðast um hvað er hot og hvað er not?
Ég var að vona að þið lumið á einhverjum góðum fréttasíðum eða stöðum þar sem hægt er að nálgast tónbrot og sjá hvað er það heitasta á hverjum tíma.

Sjálfur gramsa ég í gegnum juno.co.uk tvisvar í mánuði, finn oftast eitthvað gott þar sem er þess virði að setja á playlistann sinn, síðan fór ég að nota youtube líka. Þar er mikið af aðilum sem pósta góðri tónlist og þú getur “subscribe-að” af þessu og fengið á hverjum degi 10-15 ný lög í inboxið til að hlusta á, alger snilld.
Low Profile