SKILABOÐ TIL AKUREYRINGA!!
Category: Music

19.DESEMBER - DOMUS TECHNIKA @ DATINN AKUREYRI

Kæru Akureyringar, vinir og aðdáendur tekknótónlistar!
Í vetur munu kvöldin Domus Technika verða tilraunaverkefni hjá Jóni Jónssyni ehf. Í samstarfi við góða menn á Akureyri, Benni & Bigga, er okkur kleift að reyna á, hvort í raun sé hægt, að halda úti litlum klúbbi á 2 mánaða fresti í höfuðstað norðurlands! Fyrsta skiptið, í september s.l. var eins og menn áttu von á…:“Borga inná Dátann??? Ha??? Maður borgar aldrei inná Dátann!!!” Nú, 19.desember nk. mun annað skiptið verða að veruleika á Dátanum þar sem inngönguprísinn hefur verið lækkaður í 1000kr. Allt til að reyna að byggja um klúbbakvöld sem vonandi mun festa sig svo rækilega í sessi að talað verður um í sögubókum. Undirritaður og Casanova koma frá Hafnarfirði á föstudaginn kemur og spila frá miðnætti til 04 bestu mögulegu tekknótónlist, innlenda sem og erlenda, útgefna sem óútgefna. Akureyringar.. ekki láta þetta einstaka tækifæri, til þess að skrifa ykkar eigin sögu, renna ykkur úr greipum …. bara af því að það kostar inn á Dátann!

Breskar keðjur,
President Bongo og Casanova