Það fer ekkert á milli mála hvernig menn skemmtu sér á nasa á laugardaginn, menn greinilega svo eftir sig að ég er fyrstur til að kanna hvað mönnum fannst um kvöldið og það á mánudegi:D… Allavega þá skemmti ég mér hrikalega vel þó svo ég hafi lent í smá barnapíu hlutverki í byrjun kvölds með dauða drukkinn frænda minn sem gekk um gólf og ónáðaði fólk. Reyndar þegar áfengisvíman rann af honum var ég orðin svo drukkinn að ég ráfaði um salinn eins og rangeygður riddari og klappaði fólki á öxl og lét það vita hversu mikið mér þætti vænt um það ,jafn vel þótt ég hefði aldrey séð það áður;) … Fake fannst mér dáldið svalur en mér fannst erfitt að dansa við taktana enda var þetta live performance hjá honum er það ekki? .. Holden var truflaður! settið hans var það allra flottasta sem ég hef heyrt!:) en hvernig fannst ykkur annars?