það er ekki spurning um að sóa peningum, það er spurning um að brjóta ekki lög. Það er ólöglegt að brjóta höfundarrétt með því að gera ólögleg afrit af vernduðu efni.
Ég vildi óska að ég þyrfti ekki að borga fyrir húsið sem ég bý í eða matinn sem ég borða en í kapítalísku markaðssamfélagi eru ákveðnar leikreglur um skipti á peningum fyrir vöru og þjónustu og á móti kemur að maður getur selt vinnu sína fyrir pening. Ef maður brýtur leikreglur samfélagsins getur maður átt á hættu að vera refsað fyrir það.
Það sem ég var að spyrja þig að var hvað þú gerðir við peningin sem þú ættir með réttu að borga fyrir tónlistina. Fyrst misskipting verðmæta er þér svona mikið hjartans mál og þú vilt ekki að auður og verðmæti safnaðist á fáar hendur, væri þá ekki rétt hjá þér að eyða þeim pening sem ætti að fara í hendur tónlistarmanna (sasha, það var enginn að tala um britney spears) í góðgerðarmál.
Og nei, hef lítin áhuga á að borga þotu fyrir frk. Spears, enda á ég enga plötu með henni. Hinsvegar þætti mer vænt um ef skattpeningarnir mínir væru nýttir til þess að mennta fólk sem getur skilið hvernig samfélag okkar virkar, séð málin í víðara samhengi, hugsað um annað en eigin rass og sett frá sér skoðanir sem eru sæmilega samkvæmar sjálfum sér í sæmilega skiljanlegu máli.