KaffiBarinn

Einn sá besti og einn sá tryggasti við danstónlist að mínu mati. Þessi bar situr í toppsætunum og hefur verið það frá því Rosenberg Kjallarinn lokaði. Hérna er ströng dyragæsla og bestu dyraverðir á íslandi fyrr og síðar. Þeir eru búnir að henda slagsmálafávitunum út áður en þeir huxa um að byrja að slást, sem er svo stór plús í kladdann minn að ég bara get ekki sagt meira um það.

Hljóðkerfið er nýuppfært og fær alveg þokkalega góða einkunn. Mínusinn er kannski staðsetning á plötusnúði og aðstæður en eftir nokkuð mörg glös getur þessi mínus breyst í plús vegna nálægðar við dansgólf, barinn og fólkið og stemminguna.

Hérna verður MJÖG troðið og búist við að fá svolítið af vínskvettum yfir ykkur, en ekki vegna skrílsláta heldur vegna svaka stemmingu sem getur myndast. Dansað uppá borðum, fólk að stage-diva og þar eftir götunum. Framtíðar rockbar með danstónlist =)

Aðeins eldra lið hér en annars staðar að meðaltali, góður séns að hitta íslensk og erlend celeb og alltaf fullur staður af svaaaaaka skutlum. Getur verið mjög löng bið í röð, þannig mætið snemma. Fastagestir og “inn” liðið fær framfyrir röð.

Þetta er bar með dj en ekki klúbbur, og ef við metum hann sem slíkan þá fær hann toppeinkunn.

kveðja
B.