Hefur lýðurinn hlustað á mixið með honum sem heitir “fuck rave” ? Ég held ég hafi aldrei þvælst jafn oft í gegnum eitt mix og þetta. Held þetta hafi tvöfaldur cd sem var gefinn út, eitthvað global underground dæmi, hitt mixið heitir fuck rock, en ég er ekkert að fíla það rosalega.

Svo er smá svona auka pæling, ég dl þessu mixi nú bara, en er ég að stela útaf því þetta hefur verið gefið út á cd ? Hvað með öll hin mixin sem ég dl og artistarnir sem eru í þeim fá engu um það ráðið hvort þeir séu í þeim eða ekki ? Þessi mix eru öll skemmtilega grá hehe.