Tveir af fremmstu plötusnúðum Techno.is, þeir Exos og Tweak ætla bókstaflega að trylla lýðinn á Tunglinu á laugardaginn. Fastagestir vita nákvæmlega hvað koma skal þegar Exos og Tweak leiða saman hesta sína en þeir félagar byrja í þéttum og grimmum “electrohouse bræðing” og enda þetta svo í dúndrandi Techtrance keyrslu. Techno.is hvetur alla aðdáendur danstónlistar til að mæta snemma en hér að neðan er hægt að skrá sig á gestlistann sem gildir fyrir laugardagskvöldið.