Þýski plötusnúðurinn Micha Moor mun spila á Íslandi dagana 11. og 12. júlí.

Þann 11. Júlí mun hann koma fram í Sjallanum Akureyri í tilefni þess að útvarpsstöðin Flass er að hefja þar útsendingar á tíðnini 101,5. Ásamt Micha Moor koma fram Frigore, Exos og Sindri BM. Forsala miða er í Imperial Glerártorgi og Gallerý Ráðhústorgi. Miðaverð í forsölu aðeins 1500 kr. 2000 kr við hurð.

Daginn eftir eða 12. Júlí kemur Micha Moor fram á Tunglinu og ásamt honum spila Ghozt, Sindri BM og Exos. Tunglið mun skarta sínu fegursta og verða meðal annars bodypaintaðar stelpur sem gleðja augu gesta á staðnum. Forsala miða er í Skór.is Kringlunni. 1500 kr í forsölu og 2000 kr við hurð.

Nánari upplýsingar inn á www.flass.is

myspace.com/michamoor
Michamoor.de