Sæl öll Hörður heiti ég og hef áhveðið að bjóða mig fram sem einn þriggja stjórnenda á danstónlistar áhugmáli huga. Ég er 25 ára sandgerðingur sem hefur verið duglegur að sækja klúbbaviðburði hérlendis sem erlendis og því með brennandi áhuga á danstónlist almennt . Ég hef svo sem ekki spilað lengi ca 8 mánuði kannski en hvergi komið opinberlega fram , svo er ég að fikta við að búa til mitt efni og ég lofa ykkur að heyra þegar það kemst á loka hönd. Þó svo að ég hafi littla reynslu í spilamennsku og taktasmíði þá tel ég mig hafa fullt erindi sem stjórnandi á þessu áhugamáli , ég myndi vilja beturumbæta tenglavísa , setja inn fullt að skemmtilegum tenglum , taka viðtöl við innlenda sem erlenda plötusnúða sem spila á klakanum ..

Ég undirritaður lofa.!!! að ég myndi leggja mitt að mörkum til að gera áhugamálið sem áhugaverðast til að virkja sem flesta og fá fleiri inn á áhugamálið

Kv

Hörður Jóhannsson
Frambjóðandi