Tómas heiti ég eða Tommi eins og ég er oftast kallaður af öðru fólki en móður minni. Hef líka oft verið nefndur Tommi Trance af sumum. Ég er eins gamall og mér finnst en fyrir aðra þá er ég 27 ára gamall og ég býð mig hér fram sem frambjóðanda í kosningu fyrir nýjan stjórnanda á þessu frábæra áhugamáli.

Ég er plötusnúður og producer og spila ég ýmsar stefnur undir 2 nöfnum en helst undir Northern Mind nafninu þar sem ég spila harðari danstónlistar stefnurnar. Ég tók þátt í Flexessential þætti ársins 2007 og hefur líklega mín stærsta spilamennska verið við Iceland sensation hátíðina. Hef ég verið að semja tónlist í nær 13 ár núna og stundað plötusnúðamennsku hátt í 10 ár.

Ég mun halda áfram að koma fram við notendur þessa áhugamáls með þeirri virðingu sem þeir eiga skilið og halda áfram að vera hjálpsamur við fróðleiksfúsa huga notendur.

Takk fyrir mig.

Tómas Þórarinn Pétursson (eða bara Tommi)