Á Tunglinu næstkomandi laugardagskvöld eiga gestir von á svakalegu kvöldi mönnum sem tengjast Flex Music á einn eða annan hátt.

Þeir Sean Danke (Grétar G) og Ghozt (Kiddi) spila fyrir þig á þessu kvöldi þar sem Guðfaðirinn mætir Draugnum í neðanjarðarpartý Tunglsins um helgina. Nánar tiltekið á laugardagskvöldið þann 26. apríl nk.

Ekki klikka á þessu. Það verður miklu meira en bara stuð þetta kvöld. Þetta verður eitt af þeim kvöldum sem þú tekur með þér í gröfina.

Upphitun fer fram í Flex sama kvöld á X-inu 97.7 og hefst þátturinn á slaginu 19. Gefnir verða boðsmiðar á kvöldið!

Sendu mér póst ef þú vilt komast á gestalista ;)