Jæja nú er þessi viðburðarríka helgi að baki með bæði Dave Spoon og Benny Benassi fremsta í flokki, og leikur mér forvitni á að vita hvernig fólkið var að meta þessi kvöld..

Nú get ég einungis talað af reynslu, en ég var á báðum Dave Spoon kvöldunum, bæði á Nasa og Akureyri, og ég verð að segja það að ég er einstaklega sáttur með minn mann Mr. Spoon !

Skilaði tuddasettum af sér bæði kvöldin, og fékk frábæra mætingu á hvorum stað,, og var meðal annars þríklappaður upp í Sjallanum á Akureyri í gærkvöldi.
Toppmaður í alla staði.

Hvernig voruð þið að meta þau kvöld sem þið fóruð á um helgina,, hvort sem það var með Dave Spoon eða Benny Benassi ?