Ég átti leið fram hjá Barnum um daginn í góðra vina hópi og svo vildi til að Margeir var að spila. Ástandið á mér var ekki gott en mætti bendla það við forskrúfun ;) og man þetta kanski ekki alveg en…
Hann tók upp á því að spila eitthvað lag sem var Íslensk barna vísa og bilaðir tónar bakvið. Ég held að ég hafi heyrt þetta áður og er þetta það eina sem ég man “Valllli vallli vallli vallli ping bam bei”.
Það má vel vera að þetta sé tóm þvæla í mér og þetta hafi kanski bara hljómað í hausnum á mér en ef svo er ekki, veit þá einhver hvaða lag þetta er og hvar er hægt að nálgast það?