Flex Music kynnir með stolti Alex Anderson á tveimur klúbbakvöldum á íslandi um verslunarmannahelgina.

Á Sjallanum á Akureyri hefur verið staðfest að bætt verður við hljóðkerfið á staðnum og það aukið til muna. Aukið verður við ljósabúnað staðarins og mun Hljóð-X kynna til leiks mjög flottan lazer sem hefur verið notaður á stærstu klúbbakvöldum Reykjavíkur í gegnum tíðina. Engu verður til sparað til þess að gera þetta kvöld sem eftirminnilegast fyrir dansþyrsta norðlendinga og ferðamenn sem staddir verða á Akureyri á föstudagskvöldið.

Laugardagskvöldið verður klárlega einna flottast í höfuðborginni þar sem Alex treður upp ásamt landsliði íslenskra plötusnúða. Þeim Ghozt & Brunhein, Danna Bigroom og Sveinari sem sjá um upphafstóna kvöldsins á klúbbakvöldum Flex Music um verslunarmannahelgina.

Kvöldin hefjast kl. 23:00 og kostar eingöngu 1500.- inn.

Flex Music
Flex.is