Trance áhugamenn mega ekki láta Flex í kvöld fram hjá sér fara. Á slaginu 22.00 í kvöld á X-inu 97.7 verður sérstakur þáttur tileinkaður þessari áhugaverðu senu. Ghozt & Brunhein ætla að grafa djúpt í töskurnar sínar og spila í kvöld mikið af efni frá 1995 - 2007. Sérstakur gestur er að þessu sinni Northern Mind sem haldið hefur uppi heiðri trance tónlistar undanfarin misseri.