07.07.07!

Hinn magnaði plötusnúður Ghozt mun snúa aftur á æskuslóðir á laugardagskvöldið þegar veitinga- og skemmtistaðurinn Tony's County verður fyrir barðinu á ótrúlegri dansveislu á vegum draugsins. Hann mun sjá um að allir haldist sveittir fram eftir nóttu með frábærri hús og danstónlist af bestu gerð. Kvöldið hefst kl. ellefu og lokar staðurinn kl. þrjú og því er mælt með að fólk mæti snemma.

Tilboð er á barnum frá kl. ellefu til miðnættis þar sem tvær veigar fást á verði einnar. Eftir það mun stór kaldur og skot kosta aðeins 900.- krónur.

Hvernig væri að fjölmenna í flott partý í sveitinni á Tony's County í Ölfushöllinni (milli Hveragerðis og Selfoss) um næstu helgi.