Hver fer að verða seinastur til að geta nælt sér í miða á Fedde Le Grand en það seldist upp í forsölunni hjá Skór.is í dag. Samtalst eru því 600 miðar seldir!

Þið sem hafið ekki enn krækt ykkur í einn, þá opnar miðasalan á Broadway miðvikudagskvöldið 4. apríl kl 22:00. Húsið mun síðan opna kl 01:00. Við brýnum fyrir ykkur að mæta snemma til að forðast biðraðir!