Danstónlist fellur miklu betur undir flest allt sem hefur verið á Raftónlist í gegnum tíðina.
Öll þessi plögg.. flestar greinar og allir viðburðir falla betur undir þennan flokk. Raftónlist er annað hugtak sem í raun gæti flokkast líka undir danstónlist en ég tel þetta vera sniðugra áhugamál undir það sem ég hef í það minnsta verið að setja hér inn.
Ég, í það minnsta, þakka vefstjóranum fyrir þetta ;)
Mér finnst þetta ekki nógu sniðugt múv. Raftónlistaráhugamálið hefur átt alveg nógu mikið undir högg að sækja og mér fannst það loksins vera aðeins að koma til aftur eftir langa gúrku.
Það þarf alltaf að brjóta hluti of mikið niður. Shame.
þetta er miklu betra og fólk fer frekar inná þetta áhugamál frekar en ef það heitir RAFTÓNLIST sumir vita ekki einu sinni hvað raftónlist er…. :) þannig að þetta er gott mál að mínu mati… enda því fleiri inná þessu áhugamáli því betra! ég er ekki frá því að umferð hingað inn sé strax búin að aukast eftir að þessu var breytt:) gott mál………
áhugamálið var bara orðið innantómt auglýsingasvæði fyrir raft/dans tónlistarviðburði.
síðasta greinin með viti var gas 0095,en annars bara auglýsingar.
Ég sé ekki alveg hver mörkin milli danstónlistar og raftónlistar eiga að vera. Hér er t.d. house og techno korkur - á ég þá að skilja það sem svo að house og techno sé ekki raftónlist.
En ef þetta verður til þess að taka auglýsingarnar frá raftónlistinni yfir á danstónlist þá er ég sáttur.
korkarnir mættu samt vera á raftónlist…
blehh endalaust hvað maður getur talað án þess að hugsa nenni ekki að spá í því hvað ég var að segja
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..