Ég fann á Harmony Central síðunni forrit sem heitir AudioMulch sem er bara frábært…Hvað er frábært við það? Jú, í fyrsta lagi er það ókeypis (beta útgáfa) og virkar að öllu leyti í tvo mánuði, eða voru það þrír, ég man það ekki. Í öðru lagi er auðvelt að læra á það og maður er farinn að búa til lög með því strax. Í þriðja lagi virkar það í nánast hvaða saur tölvu sem er, ég er búinn að vera að nota það í pentíum 166 vélinni minni (skammist þið ykkar, það er ljótt að hlæja að minni máttar)…Náið í þetta og byrjið að rokka strax!<br><br>Jesus Bin Laden
Gítarar = Gibson Les Paul Standard, Fender Jazzmaster. Aria Einhverfjandinn.