Ghozt + Exos á Pravda 15. desember
(Flex Music + Techno.is)
Ghozt og Exos spila í einkasamkvæmi á Pravda næstkomandi föstudagskvöld. Um miðnætti opnar svæðið öllum öðrum og má búast við góðri keyrslu á eðal músík á Pravda næstkomandi föstudagskvöld.

Ghozt & Brunhein + Sean Danke á Pravda 22. desember
(Flex Music)
Sean Danke (Grétar G) stoppar stutt á íslandi yfir jólin og ætlar að taka vel á því með Ghozt & Brunhein á Pravda þann 22. desember . Það er ekki oft sem sá möguleiki er til staðar að upplifa guðföður danstónlistar á íslandi í eigin persónu þessa stundina þar sem kappinn býr erlendis. Ekki missa af þessu!

Ghozt & Brunhein + Joey D á Yello 29. desember
(Flex Music)
Ghozt & Brunhein ætla að bjóða upp á alvöru klúbbastemningu á Yello í Keflavík föstudagskvöldið 29. desember. Yfirskrift kvöldsins er heimsyfirráð eða dauði og kemur það allt í ljós. Það er kominn tími til að prófa eitthvað annað en miðbæinn milli jóla og nýárs. Tékkaðu á þessu!

Exos + Sean Danke á Broadway 31. desember
(Techno.is)
Exos og Sean Danke taka þétta keyrslu um áramótin á Broadway.

Booka Shade á Gauknum 19. janúar
(Party Zone)
Booka Shade kemur í heimsókn á klakann í Janúar á árslistakvöld Party Zone. Hairdoctor og Jack Schidt ásamt Booka Shade .. must be night! Frábærir tónlistarmenn þarna á ferð og eitt af flottustu kvöldum hvers árs í vændum. Árslistakvöld Party Zone klikkar ekki og lofað er mögnuðu hljóðkerfi á Gauknum fyrir vikið.

Sander Kleinenberg á Broadway 09. febrúar
(Techno.is)
Sander Kleinenberg kemur í heimsókn á klakann í febrúar samkvæmt techno.is. Óáræðanlegar heimildir eru fyrir því að kvöldið verði á Broadway enda þarf ekki minni stað fyrir slíkan snilling.


Það er meira að detta inn og nóg um að vera í desember. Taktu fram partý skóna, pússaðu þá og skelltu þér á eitthvað af þessum frábæru viðburðum sem framundan eru.