Nú er ég búinn að vera að hlusta á hann soldið síðustu daga og vikur og hann er mjög góður fyrri diskurinn er mikið betri en seinni að mínu mati meira sonva lög í ætt við Film og Logan Rock Witch heldur en á disk tvö. Ekki það að Aphex sé eitthvað að endurtaka sig alls ekki heldur er þetta mjög fjölbreytt og skemmtilegt efni frá þessu snillingi.
Lögin sem ég hef mest dálæti á eru:
á disk 1
jynweythek ylow
vordhosbn
bbydhyonchord
orban eq trx4
samt er diskurinn þannig að maður veður eiginlega að hlusta á hann allan sem heild ekki mikið af lögum líklegum til vinsælda. :)
Á seinni disknum ægir einhvern veginn meira öllu saman og hann er alls ekki eins heilsteiptur og sá fyrri.

Allavega hér er mikil snilld á ferðinni ekki kannski eins “groundbreakin” og maður átti von á en samt mjög góður.

-=PLUG=- IT