Ég fékk að upplifa skemmtilegasta fríið mitt um daginn þegar ég fór til Siófok í Ungverjalandi að djamma! Í Siófok eru til 2 þekktir og stórir klúbbar, Palace og Club Flört! Ég var ekki mikið á Flört en mjög mikið á Palace og hef held ég aldrei skemmt mér svo mikið sem ég gerði á klúbbgólvinu þar! Ég fékk svo að vita að Armin Van Buuren og Marcus Schulz eru að fara að koma til Palace 18 og 19 Ágúst! Ég byrjaði strax að plana ferð þangað með nokkrum vinum mínum! Okkur langar í rauninni að safna saman fullt af fólki í einhverskonar Group Trip þar sem við eigum annað hvort eftir að tjalda eða leigja okkur hús!

Fyrir mig er það mjög einfalt að komast þangað! Ég bý í Malmö í Svíþjóð þannig að ég get flogið með drasl flugfélaginu WizzAir og það kostar um 10 000 krónur! Síðan kostar um 2500 krónur inná klúbbinn bæði kvöldin! Semsagt um 1250 krónur á bara eitt kvöldið!
Aldurstakmark: 16 ára!

Ætlar einhver þangað? Eða hefur einhver áhuga?