Trance.is hefur opnast en í algerri mýflugu mynd.
Ég er nánast einn að vinna að gerð þessarar síðu og vildi ég að forum'ið yrði sett upp bara sem fyrst.

Hún er ennþá í fullri vinnslu og vona ég að fólk geti haft gaman af forum'inu.
Þar er hægt að ræða um trance, house, techno, progressive og aðra raftónlist ásamt því að raftónlistarmenn geta núna haft einhvern sama stað þar til eitthvað annað kemur fram.

Er það von mín og annara sem koma að gerð síðunnar að fólk fari nú að flakka inn á spjallborðið hjá okkur og hafi gaman af.

Trance.is síðan er ekki bara um trance heldur vildum við reyna að hafa svæði þar sem fólk gæti verið að tala um alls konar raftónlist ,þó svo að trance verði auðvitað í aðalhlutverki þá neitum við ekki neinum umræðum um tónlist þarna.

Tomas P
Yfir Trancebolti