Næstkomandi Laugardagskvöld eða 23. okt. gerist einnig sérstakur viðburður sem hefur oftast nær tíðkast um airwaves hátiðina. Þá munu techno plötusnúðar hinnar alræmdu Thule útgáfu sameinast í einn dúndrandi tæknó kokteil á skemmtistaðnum De Palace sem er einnig í Hafnastræti. Þetta eru plötusnúðarnir Exos, Thor og Árni Vector en þeir hafa ferðast um alla Evrópu til að kynna Thule útgáfuna. Það verður semsagt allt á fullu þetta umrædda laugardagskvöld á De Palace en kapparnir munu taka á helstu stefnum og straumum techno tónlistarinnar eins og hún gerist best. Gleðin byrjar stundvíslega klukkan 01.00 – 06.30