Næstkomandi Föstudagskvöld eða 22. Okt. gerist afar sjaldgæfur viðburður sem hefur tíðkast einu sinni á ári hverju. En þá mun einmitt techno tónlistarmaðurinn Exos koma fram með lifandi tóna og spila “ LIVE” á Icelandairwaves tónlistarhátiðinni ógurlegu. Viðburður þessi mun eiga sér stað á skemmtistaðnum Kapital í Hafnastræti og mun Exos byrja stundvíslega kl. 00:30 –01:30. Exos mun spila talsvert mikið af nýju efni en tekur þó gömul lög inn á milli. Ekki missa af þessum viðburði jafnvel þótt jimi hendrix væri að spila í laugardagshöllinni á sama tíma. Ásamt Exos verða nokkrir af fremstu raftónlistarmönnum þjóðarinnar að spila á Kapital en þar má nefna Thor, RealX, Sk/Um, Anonymous og Frank Murder.