Birt með góðfúslegu leyfi breakbeat.is
-
Í maí fara fræknustu klúbbakvöld í sögu breakbeat tónlistarinnar, Metalaheadz - Sunday Night Sessions, aftur í gang! Í gegnum árin hefur Metalheadz nokkrum sinnum þurft að færa kvöldin á milli skemmtistaða og síðasta árið hafa þau legið niðri. Kvöldin munu hefja göngu sína á ný á stað sem kallast The Limelight þann 20. maí. Á opnunarkvöldinu koma fram; Goldie & Randall, Bailey & Storm og Clarky & Marley Marl. Metalheadz kvöldin verða svo haldin á hverju sunnudagskvöldi 19:30-00:30, aðgangseyrir verður £5 fyrir 21:00 en síðan £7. Þegar er búið að bóka Fabio, Doc Scott, Loxy, Flight, Total Science, DJ Lee, Future Cut, Marcus Intalex, Digital, Photek og fleiri til að spila ásamt MC-unum GQ, Rage, Moose, Fats, Cleeveland Watkiss og Justiyc.