Mætti einhver hér á Kapital í gær (laugardag) að sjá Trabant og Hermigervill (auk þess sem margeir og T-world Dj-uðu)?

Trabant voru algjörlega í feiknarstuði, enda yfirlýst að þeir ætluðu algjörlega að rugla allt í klessu þetta kvöld og glimmerhúðaður brjóstahristingur kom ekkert niður á gæðum tónlistarinnar. Gott band, jeee.

Hermigervill var með stutt sjó, en keyrsluna í botni, var að pota í tækin með tánum og alles. Stressaður á sínum fyrstu almennilegu tónleikum, en fólkið virtist vera að digga hann.

hvernig fannst ykkur?