AAArgh! Þetta lag, ég er búinn að hlusta á það seinustu daga og fæ bara alls ekki leið á því. Að mínu mati alveg TOP NOTCH. Þetta lag er á nýja disknum hans James Holden sem heitir Balance 5 og er náttla í Balance seríunni hans. Þessi diskur er að mínu mati einn besti mixdiskur eða bara diskur sem ég er búinn að heyra í ár og já… Ef þið eruð eitthvað innan í danstónlist þá held ég að þessi diskur sé bara skilduheyrn. algjör snilld!
Þannig að sækið diskinn og ef það er ekki mögulegt þá í minnsta lagi náið í Outside með Nathan Flake og komið með comment um þetta lag. Alveg magnað lag á geðveikum disk :)
En það sem ég vill aðalega heyra frá ykkur er hvernig finnst ykkur diskurinn (ef þið eruð búnað hlustáhann) og hvernig eruð þið að fýla þetta lag? ÆJi ég bara varð að henda þessu inn… fá smá activity hingað og svona :)

kveðja…<br><br>—————–
Dance to my beat!
Dance to my beat!