Ég er með 2ja fermetra Soundcraft 8000 mixer til sölu.
Samkvæmt blaði er þetta 32 rása, 8 grúppu tæki með auka master.
Það er direct out og insertar á öllum rásum og 8 aux með 4 banda parametric tónjafnara
Praktískt séð þá eru um 30 virkar rásir í honum og circa 4 grúppur. Sjálfur hef ég notað tækið sem margfaldan microphone formagnara þar sem hver einasta rás er með mic-preamp með stillanlegt phantom power.
Ein “bilaða” rásin er orðin að einu mest framúrstefnulega noise/click/popp hljóðfæri sem sögur fara af.
Græjan hefur sterkan karakter og tekur sig sérstaklega vel út í mynd ;)
Það er enn gott sound í apparatinu, algert iðnaðar tól.
Djarfir menn gætu eflaust komið tækinu í topp form með smá fyrirhöfn. Ég á manual sem fylgdi með tækinu og þar er að finna ýmsar rásamyndir og hagnýtar upplýsingar.
Tækið selst fyrir lítið.
Lætur stúdíóið líta út fyrir að vera margfallt tæknilegra.
Tilboð óskast.