Hin magnaða íslenska hljómsveit Múm er á leiðinni í evrópskt tónleikaferðalag og mun hefja það á morgun, miðvikudaginn 30.júlí.
Fyrstu tónleikar Múm verða reyndar haldnir hér á landi og ekki á síðri menningarstað en Seyðisfirði (þeir sem ekki vita hvar Seyðisfjörður er þá er hann u.þ.b 25km frá Egilsstöðum) Allir að skella sér á tónleika með þessari mögnuðu hljómsveit í Félagsheimilinu Herðubreið á Seyðisfirði á morgun, ein af bestu hljómsveitum landsins! Mig hlakkar til, hvað með ykkur??