Síðasta sumar gáfu Atli og Leó út tvær tilraunakenndar plötur með ýmsu raftónlistarlegu ívafi. Í kvöld (13.feb 2003) halda þeir sína fyrstu tónleika. Þeir ætla að reyna að flytja tónlist af fyrrnefndum plötum auk nýrra laga á lifandi hljóðfæri s.s. gítar, orgel, trommur o.fl. Tónleikarnir hefjast kl.20:00 í Norðurkjallara MH. Tónlistin verður flutt undir ljósmyndasýningu myrkrahöfðingja MH. Ókeypis inn og kökur of kaffi á staðnum.