Þar sem “Styttri skrif og skrif sem einkennast af spurningum og fyrirspurnum o.s.frv. skal senda á korkinn” þá hendi ég þessu hingað (ég ætlaði að skrifa grein).
Það var nú ekki mikil sena þessi íslenska trakkersena, þó allnokkrir hafi verið á traxinspace (svosem haus, uu… …. uu… ég), svo dó það dæmi, og flestir á þessu áhugamáli eru í reason, frutyloops, cubase(þar er ég), logic… að ég held.
Þannig að þetta er bara smá pæling sem poppaði í hausinn minn…
Trackerar rokka. Ekki er hægt að rökræða það.
Ég var tilaðmynda með hardcore techno sprell próject undir nafninu Das Schlafzimmer vorið 2002
í tracker (það var stuð) og ætlaði að sigra heiminn, en öll lögin voru 250 bpm ;) en þá kom vírus á tölvuna og harðidiskurinn fór í hass.
Síðan sá ég þennan tracker kork eitthverstaðar á Huga og sá að hann var dauður. Þannig að ég spyr, er eitthver að trakka?

Gledilegúr jólúr ;)<br><br>Tonik