Elektrolux á Föstudagskvöldið - 1. nóvember ! Einn allra heitasti plötusnúður heimsins í dag er án vafa bandaríski snillingurinn Felix Da Housecat. Hann hefur næstum eins síns liðs glætt hús tónlist nýju lífi með ferskum elektrostraumum. Platan hans Kittenz & Thee Glitz setti bylguna af stað….

Hann ætlar að gera allt vitlaust ásamt Alfons X á brjáluðu Elektrolux kvöldi á Gauk á Stöng föstudagskvöldið 1. nóvember.

Miðaverð í forsölu 1500 kr.
Við hurð 2000 kr.

Forsala hefst í Þrumunni, Laugavegi 69, þriðjudaginn 29. nóvember.