Lovefingers @ Kaffibarinn Hinn ofursvali NYC plötusnúður og tónlistarbloggari Lovefingers kemur hingað til lands um næstu helgi en hann mun búa til stuð á Kaffibarnum á laugardagskvöldið. Fyrr um kvöldið mun hann stinga inn nefi í PartyZone á Rás2 og taka sett. Það hafa margir dálæti á tónlistarbloggsíðunni hans, lovefingers.org. sem hann hefur haldið úti í allmörg ár. Einnig er hann að gefa úr frábæra tónlist í house og disko reedit deildinni og heldur úti eigin plötuútgáfu undir Blackdisco nafninu

Hann kom hingað til lands sumarið 2007 og spilaði á Dansa Meira kvöldi á Barnum sem þá var og hét. Það eru strákarnir í fknhndsm sem eiga heiðurinn að því að fá hann til landsins í þetta skiptið. Þeir eru alltaf með aðra löppina í New York eins og heyrist á tónlistinni þeirra.

http://www.facebook.com/home.php?ref=home#/event.php?eid=96160474931&ref=ts

http://www.lovefingers.org