Rafmagnað Tuborg Partý á Sódóma 10. júlí *BLOODGROUP*
Nýkomin heim úr velheppnuðu tónleikaferðalagi um Norður Ameríku. Bloodgroup kom m.a fram á tónlistarhátíðinni NXNE þar sem þau fengu frábæra dóma. Hljómsveitin ætlar að flytja efni af væntanlegri breiðskífu á tónleikunu.

*SYKUR*
Ferskasta rafpoppið á markaðnum í dag! Það er ekki hægt annað en að dansa við tónlistina sem þessir frumlegu fýrar framkvæma á færibandi.
www.myspace.com/sykurtheband

*JUNGLE FICTION*
Nýjasta skrautfjöðurinn í glæsilegum hatti New Crack City Records. Þrír strákar sem spila kraftmikla raftónlist í ætt við Steed Lord, Daft Punk, Chromeo o.fl.
www.myspace.com/junglefiction

*OCULUS*
Oculus þarf vart að kynna fyrir neinum sem hefur fylgst með danstónlistarsenunni á Íslandi. Hann er búinn að slá í gegn með frábæru livesetti þar sem hann fer hamförum!
www.myspace.com/oculusmusic

FRÍTT INN!!

Aukahljóðkerfi verður sett upp fyrir tónleikana.

Húsið opnar kl 22.00
Forgive me Father, for I have synthed.