Núna undan farið hef ég verið að fylgjast svona með ákveðinni tegund af raftónlist, þ.e.a.s. Trance og House tónlist.
Ég hef tekið eftir því undan farið að fólk veit mjög lítið hverju það er að leita af þegar það vill finna góða trance tónlist og ég hef ákveðið að setja inn nokkra Live server'a sem spila non-stop trance og house tónlist, þetta er víst orðið mjög vinsælt á skemmtistöðum og dansstöðum að spila þetta og fólk verður gjörsamlega brjálað þegar byrjað er að spila þetta.
Ég þekki mikið af fólki sem ‘vill’ ekki dansa þ.e.a.s. það þorir ekki að dansa vegna þess að það heldur að það geri sig að fífli o.s.f. (sem er auðvitað bara bull, þetta gengur út á það að gera sig að fífl. Hehe)
En margir vinir mínir, þegar trance tónlist, eða house, byrjar að spila þá gjörsamlega sleppa þeir sér og bara byrja að flippa við þetta. Þess vegna finnst mér þessi tónlist mjög svona.. höfða til fólks sem vill eiginlega ekki dansa við Rokk og rapp og þessar týpísku tónlist sem er oft spiluð.
Ég ætla að setja eftirfarandi servera inn.

http://193.75.110.132:8500 - Hard Trance
http://205.188.234.68:8006 - Hard House
http://205.188.234.129:8032 - Trance

Þetta eru allt server'ar sem að Digitally Imported er með (www.digitallyimported.com) og það eru spilum mjög góð lög þarna.
Fyrir áhugamenn um trance tónlist og house. Endilega skellið ykkur á þetta og hlustið á lögin og svona.

—-> Lalli